Ađalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

saumó á mánudaginn:)

15. apríl 2009 klukkan 18:36
hæhæ
ég ætla að vera með saumaklúbb á mánudaginn býst við því að ég verði með léttar veitingar en læt ykkur vita ef ég verð með mat:)

endilega látið vita hvort þið komist.

kv. RUt

Skinku-innflutningspartý vúha!!!!

22. desember 2008 klukkan 09:37
Partý partý... Nánar

Gamlárs!

01. desember 2008 klukkan 00:14
Sælar.
VIð Sandra vorum að ræða saman og erum orðnar ansi spenntar fyrir jólum og ekki síður fyrir áramótunum! ;) Við vorum að spá í hvort það væri e-r stemming fyrir að skála í kampavíni og tralla fram á morgun? Ég veit að það er mánuður í að árið endi, en reynslan er alltaf sú að maður er á síðustu mínútu að ákveða hvað maður gerir á gamlárs! Bara pæling..
Kveðja
Sóley

Saumó hjá Lilju

13. nóvember 2008 klukkan 20:48
Nú er kominn tími á að ég haldi saumó næst. Tímasetning: Mánudagurinn 17. nóvember kl 20. Staður: heima hjá mér Tröllaborgir 23, efri hæð, 112 Grafarvogur.
Þetta verður bara létt kaffi og með því:-)
Allar að mæta!
Kveðja Lilja Dögg

25 ára afmćlispartý!!!

03. nóvember 2008 klukkan 21:49

Jæja, svona fyrir ykkur sem eruð ekki með facebook... það verður afmælispartý heima hjá mér þann 21. nóvember næstkomandi.


Öllum Skinkum (og Hangikjöti fyrst það er nú komið á klakann) og mökum er að sjálfsögðu boðið!


Dagsetning: 21. nóvember 2008

Staðsetning: Grandavegur 3, 107 Reykjavík

Tími: 21:00


Kveðja,

Björk


Saumó!

21. október 2008 klukkan 20:32
Jæja skvísur.
Ég bókaði október og lofaði að halda saumóinn, ég ætla ekki að bregðast ykkur og hef fundið dagsetningu sem hentar mér vel til að bjóða ykkur heim.
Saumó verður s.s. næsta sunnudag 26/10 svona milli kl 20 og 21 - kem með nánari tímasetningu síðar í vikunni.
Ég ætla ekki að bjóða ykkur upp á mat - puhuhu-  þar sem ég er afbragðs lélegur kokkur. Hinsvegar mun ég finna upp á e-u svaka sniðugu fyrir ykkur... leggja höfuðið í bleiti!
Mjög gott væri að vita hversu margar komast, svo endilega kommentið á síðuna hvort þið komið eða ekki.

Ég vil líka afsaka hversu seint ég tilkynni dagsetninguna, en ég hef verið í hálfgerðu móki síðan við komum frá Höfn.. geng um gólf og raula "Lady madonna" og vinn í því að láta renna af mér eftir þessa skemmtilegu ferð.:D
Við Lilja og Rut vorum eins og prinsessur heima hjá Söndru og skemmtum okkur held ég bara allar konunglega... Btw- það verður fjölmennt til Hafnar í sumar á humarhátíð af skinkum og fylgihlutum...
kv.
Sóley

BÍTLARRRR.....!!!

22. september 2008 klukkan 11:27

Þetta voru orðin svo mörg komment hjá okkur að ég ákvað bara að búa til nýja færslu Glottandi

Bítlashowið...

Matseðill
  Forréttur: Tortilla bleikja - Heit humarfroða - Humar vorrúlla
  Aðallréttur: Hægeldaður lambaskanki með tómatmauk sósu

  Eftirréttur: Hvítt súkkulaði skyr frauð með mangó ís og ananas

Skráðar eru:
  Sóley
  Hrefna
  Ása
  Lilja
  Rut

Brottför frá Reykjavík:
  Föstudaginn 10. október kl.????
  Sennilega sniðugast að fara á einum bíl
Brottför frá Höfn:
  Sunnudaginn 12. október kl.???
  Sennilega er best að fara seinnipart dags þar sem gert er ráð fyrir mikilli skemmtun og litlum svefni náttina áður Svalur

Bílstjóri: ???

Gististaður:
  Dalbraut 8, neðri hæð
  780 Höfn Hornafirði
  Hótelstjóri: Sandra Björg Stefánsdóttir

Lagalistinn hljóðar upp á 22 lög, t.d.:
  Eight days a week
  Lucy in the sky with diamons
  A hard days night
  Elenor Rigby
  Back in the USSR
  Hey Jude

Vinsamlegast lærið laglínu og texta við lögin:
 
Lady Madonna
  In my life

Ég hlakka svoooo til að fá ykkur
Sandra


BrosandiBrosandiBrosandiBrosandiBrosandi

Bítlashow á Höfn

08. september 2008 klukkan 09:59
Halló halló Skinku-skvísur
Nú er ég formlega flutt á Höfn í Hornafirði, í mína eigin íbúð Brosandi Í tilefni af því ákvað ég að skella mér í Skemmtifélagið hér í bæ sem setur upp söngsýningu á hverju hausti. Í ár verður sett upp Bítlashow á Hótelinu.

Það væri ofsalega gaman ef þið kæmust hingað austur helgina 10. til 12. október. Þá gætum við skemmt okkur saman og þið gist hjá mér og svo færuð þið á mat og show á hótelinu á laugardeginum.

Það er rúmur mánuður í þetta þannig að þið hafið smá tíma til að redda vinnu og heimalærdómi Glottandi

Væri voða gaman að sjá ykkur sem flestar
Sandra

Vetrarplan!

18. ágúst 2008 klukkan 12:02
Vó vó vó svakaleg stemmning á blogginu okkar!
Jæja dömur! Voandi var sumarið viðburðaríkt hjá ykkur! Það var viðburðaríkt hjá mér þó svo að ekki hafi verið mikið um útilegur og djömm þá var þetta bara rólegt og skemmtilegt sumar!
Nú fer haustð að nálgast...burr.... og þá er ekki seinna vænna en að fara að skella á einum skinku klúbb! Hvað finnst ykkur um að við förum að setja e-ð kerfi á hvenær og hver heldur hitting? Hvað er áhugi fyrir að gera t.d í vetur? og hvað má líða langt á milli klúbba? Held að Hrefna hafi haldið síðast og það var í ... ehhh man ekki ... hugsa... 20. maí, hélt að það hefði verið lengra síðan. Var einhver búin a panta að vera næst að halda?

Kveðja Lilja Dögg

Versunarmannahelgin!

19. júlí 2008 klukkan 13:20
Stelpur.. hvað ætlið þið að gera um versló.. ég veit að Ása og Rut eru að fara til eyja og drekka sig haugafullar! En þið hinar... er mega plan?

Við Rafn vorum að velta fyrir okkur hvort e-r væru heitir til að fara í útilegu e-t þar sem veðrið verður gott? og búa til okkar eigin versló stemmingu ;)
 Hvað segið þið sem ekkert eruð búnar að plana?

kv.
Sóley sem er alltaf í vinnunni nema um versló!

Klukkan

Skinkurnar

Arna
Áka
Ása
Björk
Hadda Hrund
Hrefna
Hrönn
Lilja
Oddrún
Rut
Sandra
Sigrún
Sóley

Saumó-planiđ

Ágúst '08 = Hadda Hrund
September '08 = Ása
Október '08 = Sóley
Nóvember '08 = Lilja Dögg
Desember '08 =
Janúar '09 = Sigrún
Febrúar '09 = Oddrún
Mars '09 = Rut
Apríl '09 =
Maí '09 =
Júní '09 = Hrefna
Júlí '09 =
Ágúst '09 =

Innskráningar kubbur